Atorka

Valdís Arnardóttir, forstöðumaður samskiptasviðs hjá Atorku

"Áður en við lögðum af stað fórum við í ákveðna forvinnu og unnum þarfagreiningu með verkefnastjóra frá TM Software á vefnum okkar. Allt samstarf hefur gengið hratt og vel fyrir sig og hélt verkefnastjóri mjög vel utan um verkið frá upphafi til enda. Í alla staði gekk vinna vefsins mjög vel og öll vandamál sem upp komu leyst. Kerfið sjálft er einfalt í notkun og hentar vef eins og okkar mjög vel."

Icelandair

Guðmundur Óskarsson, forstöðumaður markaðs- og viðskiptaþróunar Icelandair

“Við vildum að nýtt vefsvæði okkar endurspeglaði sem allra best nýja ímynd Icelandair og aukna áherslu okkar á þjónustuþætti á vefnum en vefsvæðið er meginkerfi í tekjuöflun og þjónustu okkar.  Með nýju viðmóti vefsins og tilkomu nýjunga í virkni viðhaldskerfisins hefur vinnustundum við viðhald Icelandair vefsins fækkað um helming. Nú nýtist tími okkar betur í að vinna að efni og markaðssetningu vefsvæðisins. Það að SVEF, Samtök vefiðnaðarins, skyldu velja vefsvæðið Besta sölu- og þjónustuvefinn 2008 segir okkur að við erum á réttri braut.”

 

Intrum Justitia

Hrafnkell Sigtryggson, sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Intrum á Íslandi

"Áður fór mikill mannafli og tími hjá okkur í að veita upplýsingar í gegnum síma um stöðu krafna. Núna nálgast viðskiptavinir okkar allar þessar upplýsingar á vefnum, sundurgreindar og í rauntíma. Þarna liggur mikill sparnaður. Markmiðið með þessum umbótum er umfram allt betri upplýsingar fyrir kúnnann og  að þeir starfsmenn viðskiptavina okkar sem hafa með innheimtumál að gera geti fengið allar upplýsingar um stöðu krafna milliliðalaust, en starfsfólk  Intrum fær ósjaldan hrós frá viðskiptavinum sínum um það hversu ítarlega þjónustu Viðskiptavefurinn veitir."

 

Pósturinn

Dögg Matthíasdóttir hjá Íslandspósti.

„Við erum einstaklega ánægð með verkefnastýringuna hjá TM Software og hversu hratt verkefnið hefur gengið fyrir sig. Við erum mjög ánægð með útkomuna og erum viss um að nýja vefsvæðið muni henta viðskiptavinum okkar sérlega vel."

 

Reykjavíkurborg

Lilja Ólafsdóttir, þáverandi forstöðumaður upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar,

"Reykjavíkurborg lét gera athugun á ýmsum vefumsjónarkerfum sem í boði voru á markaðnum. „Þessi kerfi voru metin og niðurstaðan varð sú að ContentXXL kom best út. Kerfið fullnægði þörfum okkar og þeim skilyrðum sem við settum.“

SPRON

Arnar Ægisson, forstöðumaður upplýsingatæknisviðs SPRON

"Undanfarin ár höfum við notið aðstoðar TM Software við að byggja upp vefsvæði okkar og hafa þau tekið miklum framförum. Nú er svo komið að viðskiptavinir SPRON eru orðnir sjálfbærir með flestar þær þjónustur sem SPRON bíður upp á og því um augljósa hagræðingu að ræða fyrir okkur. Með framúrskarandi þjónustu og mikilli þekkingu og reynslu hefur TM Software skilað okkur miklu." 

Tryggingastofnun ríkisins

Hermann Ólason, upplýsingatæknistjóri Tryggingastofnunar ríkisins

"TM Software hefur síðastliðin ár unnið með starfsfólki Tryggingastofnunar ríkisins að þróun greiðslukerfis lífeyristrygginga, Ölmu, sem er eitt af meginkerfum TR. Við höfum verið mjög ánægð með verkferla og gæðaeftirlit sem TM Software hefur notað við þróun kerfisins og getum óhikað mælt með þeim sem samstarfsaðila við framkvæmd stórra og krefjandi hugbúnaðarverkefna."

Vínbúðin

Jóna Grétarsdóttir, markaðsstjóri hjá ÁTVR:

„Vinnan með TM Software hefur gengið mjög vel og sérfræðingar fyrirtækisins hafa þjónað okkur vel. Við erum mjög ánægð með útkomuna og erum sannfærð um að viðskiptavinir okkar verði það líka. Markmið okkar er að halda áfram á þessari braut og gera www.vinbud.is að einum flottasta vef landsins.“

Vörður

Hildur Grétarsdóttir,  forstöðumaður gæða- og þróunarmála hjá Verði.

”Við völdum WebMaster vefumsjónarkerfið af því það er einfalt í notkun og hentugt fyrir vef eins og okkar. Samstarfið við TM Software hefur gengið mjög vel og við höfum fengið mjög góða þjónustu í tengslum við þennan nýja vef."

Öryggismiðstöðin

Ómar Örn Jónsson, markaðsstjóri Öryggismiðstöðvarinnar

"Hönnun og forritun vefsins var á höndum TM Software og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir gott samstarf og sérlega vönduð vinnubrögð."