
Atlassian er ástralskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þróar öflugar og ódýrar veflausnir sem henta fyrirtækjum í öllum geirum. Við höfum verið í samstarfi við Atlassian síðan 2006 um sölu og þjónustu á JIRA verkefnastjórnunarkerfi og wiki kerfinu Confluence auk tengdum hugbúnaði sem við notum í þróunarumhverfi okkar með frábærum árangri.
Mule er einfaldur en öflugur samþættingarhugbúnaður sem er opinn hugbúnaður og byggir á JAVA. Þar sem það er léttvigtarkerfi, einfalt í uppsetningu og rekstri, þá er hægt að innleiða lausn á verkefni strax, í stað þess að eyða dýrmætum tíma í uppsetningu og innleiðingu á hugbúnaðinum. Þannig er okkur mögulegt aðvinna að því að skapa verðmæti fyrir viðskiptavininn frá fyrsta degi.
IBM hefur þróað öflugan miðbúnað (e.middleware) fyrir stór og smá fyrirtæki sem þurfa lausnir á sviðum eins og rafrænum viðskiptum, samþáttun kerfa, samskipti notenda, meðhöndlun gagna, kerfisstjórnun og hugbúnaðarþróun. Meðal hugbúnaðar frá IBM má telja IBM Webspere, DB2, Lotus, Tivoli og Rational.
Gartner spáir því að fyrir árið 2012 verði í það minnsta 80% alls hugbúnaðar opinn að hluta eða öllu leyti. Starfsmenn okkar hafa sérþekkingu á opnum lausnum sem hafa náð fótfestu og útbreiðslu á markaðnum, jafnframt því að vera þekktar fyrir áreiðanleika og vera í notkun hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum í dag.
Við erum gull samstarfsaðili Microsoft og vottaðir sölu- og þjónustuaðili fyrir m.a. Microsoft SharePoint Server, BizTalk og viðskiptagreind auk veflausna byggðum á .NET og Silver Light. Við höfum mikla reynslu í innleiðingu Microsoft lausna hjá viðskiptavinum, m.a. á sviði innri vefsvæða, skjala-, verkefna- og fjármálastjórnunar.
Ólíkt samkeppnisaðilum okkar á sviði veflausna þá bjóðum við úrval öflugra vefumsjónarkerfa í takt við fjölbreyttar þarfir fyrirtækja. Við þróum okkar eigin kerfi eins og WebMaster, Herstjórann og Tempo en auk þess bjóðum við lausnir frá samstarfsaðilum okkar: VYRE, ContentXXL, IBM, Microsoft, Atlassian, Alfresco og fleirum.