WebMaster - Aukin afköst, minni kostnaður
WebMaster er öflugt vefumsjónarkerfi sem er í stöðugri þróun. Það er hannað af starfsmönnum TM Software sem auðveldar alla sérsmíði og gerir okkur mögulegt að koma á móts við ólíkar þarfir viðskiptavina. Vefumsjónarkerfið WebMaster hentar öllum og er höfuðáhersla okkar við hönnun á WebMaster að auðvelt sé að setja upp og viðhalda sterkum vefjum og vefsvæðum.
WebMaster - Grunnkerfi
Grunnkerfi WebMaster myndar sterka heild sem gerir notendum mögulegt að byggja upp og viðhalda veftré, texta, myndum, tenglum og fleiri upplýsingum á vefsvæðum auk þess sem það býður upp á öfluga leit í gagnagrunnum og fyrirspurnir. Framsetningu upplýsinga er stjórnað í gegnum sniðmátssíður og tengingu þeirra við efnisflokka í flokkakerfinu.
- Sniðmátssíður ráða hvernig texti, myndir o.s.frv. birtast á vefsvæði. Sniðmátin eru búin til og sett upp eftir þörfum hvers og eins. T.d. flokkasniðmát, fréttayfirlit, frétta- og greinasniðmát, fyrirspurnasniðmát, starfsmannasniðmát, leitarsíða og veftré
- Flokkakerfið er hjartað í WebMaster en þar er haldið utan um leiðakerfið og veftrénu er viðhaldið.
- Leiðakerfið og veftré myndast sjálfkrafa um leið og flokkarnir eru búnir til af notandanum.
- Greina- og fréttakerfið heldur utan um nær allt texta- og myndefni á síðum vefsvæðisins.
- Tenglakerfið heldur utan um birtingu tengla á fyrirfram ákveðnum stað á vefsvæðum en einnig er mögulegt að setja inn tengdar vefsíður í greina- og fréttakerfinu.
- Starfsmanna- og notendakerfi þar sem haldið er utan um upplýsingar um notendur og aðgangi er stjórnað. Einnig er mögulegt að nota kerfið til að birta starfsmannaupplýsingar á vefsvæðum.
- Stillingakerfi þar sem mögulegt er að stjórna ákveðnum birtingarhlutum og föstum, s.s. tölvupóstfangi, fjölda frétta á forsíðu, fjölda mynda og fleira.
WebMaster – Sérkerfi
Með WebMaster kemur fjöldi sérkerfa sem uppfylla viðbótarþarfir fyrirtækja. Kerfunum má bæta við WebMaster grunnkerfið strax í upphafi eða síðar. Þannig gerir uppbygging WebMaster fyrirtækjum mögulegt að sníða sér stakk eftir vexti og stækka vefsvæði sín í samræmi við vöxt fyrirtækisins. Meðal sérkerfa WebMaster eru:
- Auglýsingakerfi
- Myndakerfi
- Spurningar og svör (FAQ)
- Orðskýringakerfi
- Skoðanakannanakerfi
- Flýtistikukerfi
- Forsíðukerfi
- Póstlistakerfi
- Atvinnuumsóknakerfi
- Skjalakerfi
- Verðskráakerfi
- Skilmálakerfi
- Vefverslun