Beint í leiðarkerfi vefsins


Herstjórinn

Herstjórinn er póstlista- og herferðakerfi sem býður upp á mikla möguleika í útsendingu markpósts á Netinu og utanumhaldi og greiningu á upplýsingum sem sendar eru út.

Í Herstjóranum er á mjög einfaldan hátt hægt að búa til tölvupóst, setja í hann sniðmát og hlekki úr hlekkjabanka kerfisins og að lokum senda póstinn til áskrifenda póstlistans.

Eftir að póstur hefur verið sendur má fylgjast með árangri herferðarinnar þ.e. hversu mikið áskrifendur nýta sér hlekkina og smella á þá.

Af hverju að velja Herstjórann?

Með Herstjóranum er auðvelt að ná til viðskiptavina á hagkvæman og fljótlegan hátt.  Með því að hafa samskipti við viðskiptavini á beinan hátt byggjum við upp sterkan og góðan viðskiptavinahóp. Auðvelt er að vinna með markhópa með beinum hætti og eftir þörfum hverju sinni.


Við bjóðum upp á mismunandi stærðir pakka og lausna sem eru sérsniðin að þörfum hvers og eins. Ef þið hafið einhverjar spurningar eða þið hafið áhuga á að kynna ykkur kerfið sendið þá endilega tölvupóst á info@tmsoftware.is

 

 

Póstlistana er hægt að búa til á tvenna vegu. Annars vegar með því að búa fyrst til póstlistann og bæta áskrifendum handvirkt á hann, og hins vegar með því að innleiða tilbúinn póstlista beint í kerfið úr Excel skrá. Herstjórinn heldur utan um póstlistana og sendir á þá á skjótan og öruggan hátt.
Herstjórinn er aðgangsstýrður með sex mismunandi hlutverkum. Þau gefa aðgang að kerfinu á þægilegan hátt fyrir mismunandi stig notanda.

Hlutverkin eru :
     Að skoða gögn úr herferð
     Að búa til herferð og vista
     Að senda herferð
     Að stjórna áskrifendum, póstlistum og sniðmátum
     Að breyta notendum kerfis
     Að búa til notendur í kerfinu og breyta stillingum

Hægt er að raða mismunandi hlutverkum saman og búa til mismunandi notendur að kerfinu.
Hlekkjabankinn í Herstjóranum er notaður þegar á að fylgjast með smellum á þá slóð (þann hlekk) í kerfinu. Eftir að búið er að senda póstinn er hægt að skoða niðurstöður herferðarinnar – þ.e. hversu marga einkvæma smelli hver hlekkur hefur fengið (í einkvæmum smellum er bara talið einu sinni fyrir hvern áskrifanda) og einnig hversu marga smelli hlekkur hefur fengið í heildina. Þessar upplýsingar birtast bæði á grafi og í töflu.

Nýttu þér Herstjórann til að auðvelda við að senda út :
         Fjöldapóst í tengslum við markaðsherferðir
         Sérhönnuð fréttabréf
         Fréttatilkynningar
         Fyrirtækjafréttir
         Tilkynningar

Viltu vita meira?



Skjáskot