ContentXXL
ContentXXL er öflugt vefumsjónarkerfi byggt á .NET tækninni og hefur hlotið verðlaun fyrir lausnir í því umhverfi frá Microsoft.
MeiraFormasmiðurinn
Formasmiður er kerfi sem býður upp á mjög einfalda leið til að búa til form - „rafræn eyðublöð“ - fyrir allar almennar umsóknir, beiðnir og skráningar. Innsendar umsóknir eru sendar í verkflæði sem tryggir eftirfylgni og úrlausn innsendra umsókna/beiðna.
MeiraGoogle Apps
Með því að innleiða hjá sér Google Apps geta fyrirtæki lækkað kostnað hjá sér að meðaltali um 50%-75% (Heimild: Should Your Email Live in The Cloud?‘ Ted Schadler, Forrester, 2009).
MeiraGæðahandbókin í SharePoint
Gæðahandbók í SharePoint frá TM Software er lausn sem hentar afar vel til þess að halda utan um skipulag og vistun skjala gæðahandbóka. Lausnin er byggð á SharePoint frá Microsoft og styður bæði Windows SharePoint Services og Microsoft Office SharePoint Server.
MeiraHerstjórinn
Herstjórinn er póstlista- og herferðakerfi sem býður upp á gríðarlega möguleika í útsendingu efnis og utanumhaldi upplýsinga sem sendar eru í póstlistum. Í kerfinu er innbyggður hlekkjabanki sem heldur utan um þá hlekki sem notaðir eru og einnig er hægt að skoða tölfræðiniðurstöður varðandi notkun hlekkjanna í herferðinni.
MeiraIBM DB2 gagnastjórnunarlausnir
IBM DB2 gagnastjórnunarlausnir aðstoða fyrirtæki við að stýra upplýsingum með því að safna, greina, samþátta og dreifa gögnum með öruggum hætti.
MeiraJIRA
JIRA er öflugt og sveigjanlegt verkstjórnunar- og þjónustukerfi sem gerir starfsmönnum og viðskiptavinum kleift að skrá beiðnir, forgangsraða og úthluta þeim, fylgjast með ferli beiðna, skrá niðurstöður og vinnutíma. Það hentar mjög vel þörfum verkefnastjóra sem vilja fylgjast með verkefnum, niðurbroti þeirra, framgangi og niðurstöðum hvort sem er í tölum eða með línuritum og gröfum. En JIRA er meira því sveigjanleiki þess gerir fyrirtækjum kleift að útfæra og aðlaga kerfið að viðskiptaferlum sínum.
MeiraMicrosoft BizTalk
Microsoft BizTalk Server gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að hagræða og sjálfvirknivæða mikilvæga viðskiptaferla sem snerta t.d. viðskiptakerfi, starfsmenn og samstarfsaðila. BizTalk er öflugur hugbúnaður sem gerir sérfræðingum á sviði hugbúnaðarþróunar, kerfisfræði og viðskipta kleift að hanna, þróa og stýra dreifðum viðskiptaferlum fyrirtækja á mjög hagkvæman hátt. Í því felst tækni og tól til að tengja saman alla helstu gagnagrunna og kerfi sem fyrirfinnast á markaðnum í dag.
MeiraMicrosoft Dynamics CRM
Hugmyndafræðin um CRM (Customer Relationship Management) miðar að því að fyrirtæki líti á tengsl við viðskiptavini – núverandi og verðandi – sem eina af verðmætustu auðlindum sínum. Mikilvægi þess að halda viðskiptavinum og sækja markvisst á ný mið verður seint ofmetið. Er þitt fyrirtæki að nýta kosti CRM?
MeiraMicrosoft hugbúnaður
Starfsmenn TM Software hafa breiða þekkingu og reynslu á innleiðingu Microsoft hugbúnaðar. Í krafti þess og sem gull samstarfsaðili Microsoft höfum við byggt upp mikla Microsoft þekkingu til að styrkja enn frekar starfsemi viðskiptavina. Við sérhæfum okkur í MS Office SharePoint Server (MOSS), SQL Reporting Services-viðskiptagreind, Biztalk og sérlausnum byggðum á .NET. Auk þess eigum við mikið af viðbótum - tilbúnum hugbúnaðareiningum sem auka á notagildi Microsoft hugbúnaðar.
MeiraMule Source
Mule er einfalt en öflugt samþættingartól sem byggir á JAVA. Þar sem það er léttvigtakerfi, einfalt í uppsetningu og rekstri, þá er hægt að fara strax í útfærslu á lausn og ekki þarf að eyða dýrmætum tíma og fjárhæðum í uppsetningu og innleiðingu á hugbúnaðinum. Þess vegna geta fyrirtæki strax farið í að skapa verðmætar lausnir fyrir reksturinn. Mule nýtir sér þjónustumiðaðan arkitektúr (SOA) sem leyfir auðvelda samþáttun á núverandi upplýsingakerfum þrátt fyrir að kerfin noti ólíka tækni og þjónustur, t.a.m JMS, vefþjónustur, JDBC, HTTP o.fl. Mule miðlar samskiptum milli þeirra allra á hnökralausan hátt.
MeiraNámsstjórinn
Námskeiðkerfi TM Software heldur utan um námskeiðahald, hvort sem er fyrir starfsfólk, félagsmenn eða viðskiptavini og með því er auðvelt að fylgjast með skráningu og eftirspurn á námskeið. Námskeiðin eru birt á forsíðunni með dagsetningu og staðsetningu. Hægt er að leita og flokka námskeið eftir ýmsum forsendum.
MeiraOffice SharePoint Server 2007
Microsoft Office SharePoint Server 2007 (MOSS) er stöðluð vefgátt (e. Portal) sem gerir fyrirtækjum kleift að setja upp öfluga samskiptagátt og innranet fyrir hópa til að deila upplýsingum og þekkingu í einföldu og samhæfðu viðmóti við MS Office. SharePoint getur meðal annars haldið utan um: verkferla, geymslu skjala og skjalavinnslu, ýmis eyðublöð, viðskiptagreind, blog og wiki. Auk þess er hægt að bæta við og þróa sérhæfða vefparta til að uppfylla viðbótar þarfir. Með SharePoint er hægt að leggja grunninn að bættu upplýsingaflæði og ákvarðanatöku hjá fyrirtækjum.
MeiraOneResponse - samvinnulausn í SharePoint
TM Software hefur þróað samvinnulausn í SharePoint fyrir stofnanir sem vinna í þágu almannavarna. Launsin nefnist OneResponse og var hún unnin í samvinnu við Microsoft Corpration. Henni er ætlað að aðstoða stjórnvöld og alþjóðastofnanir víða um heim við að samhæfa viðbrögð við náttúruhamförum og farsóttum með aðstoð upplýsingatækni.
MeiraOpinn og frjáls hugbúnaður
Hjá TM Software er viðskiptavinurinn ávallt í fararbroddi en ekki þær lausnir sem við höfum upp á að bjóða. Við einblínum á að skilja sýn og þarfir viðskiptavinarins með hans áskoranir í huga. Með þessu móti getum við komið með lausnamengi sem eru opin og jafnframt sveigjanleg og hægt er að byggja upp yfir tíma; innan þeirra áætlunar sem viðskiptavinurinn hefur sett sér. Við vinnum því mjög þétt með viðskiptavinum okkar í því að finna opnar lausnir sem við vitum að eru tilbúnar og hafa sannað sig í rekstri stærri fyrirtækja erlendis og okkar starfsfólk hefur þekkingu og getu til að styðja við þær lausnir.
MeiraProjects2Share
Projects2SharePoint er verkefnagátt fyrir Microsoft SharePoint. Verkefnagáttin veitir þátttakendum verkefna aðgang að ýmsum upplýsingum um verkefni, stöðu þeirra og vinnusvæðum. Hvert verkefni er útfært í sérstökum verkefnavef þar sem haldið er utan um öll skjöl þess, tengiliði, vörður og fleira. Lausnin er byggð á SharePoint frá Microsoft og styður bæði Windows SharePoint Services og Microsoft Office SharePoint Server
MeiraSharePoint Field Updater
SharePoint Field Updater frá TM Software gerir skráningu lýsigagna fyrir efni sem vistað er í SharePoint sjálfvirka. Lausnin er byggð á SharePoint frá Microsoft og styður bæði Windows SharePoint Services og Microsoft Office SharePoint Server.
MeiraTempo Plugin
Tempo Plugin updates Atlassian's popular JIRA platform with support for billing and salary administration with sophisticated time-tracking and cost reporting capabilities. The Tempo plugin creates solutions for any project by allowing staff to register the full spectrum of their tasks and billable hours through a single web-based interface.
MeiraTM Software bjargar málunum
TM Software hefur þróað skjala- og samskiptalausnir sem byggja á SharePoint frá Microsoft. Markmiði er að auðvelda fyrirtækjum og stofnunum aðgang gögnum þar sem gæði og skipulagi er betra og markvissara. Það skiptir miklu máli að hafa aðgang að réttum gögnum
MeiraVYRE Unify
VYRE Unify er vefumsjónarkerfi til að byggja og viðhalda vefsíðum og veflausnum þar sem miklar kröfur eru gerðar til sveigjanleika og skalanleika.
MeiraWebMaster
WebMaster er vefumsjónarkerfi sem gerir notendum kleift að byggja upp og viðhalda vefsíðum á einfaldan og skilvirkan máta.
MeiraWebTrends 8
Webtrends er öflugt vefgreiningartól sem veitir heildaryfirsýn yfir umferð um vefsvæði og hjálpar bæði við að ná til nýrra viðskiptavina jafnt sem halda sambandi við núverandi viðskiptavini.
Meira