Beint í leiðarkerfi vefsins


IBM DB2 gagnastjórnunarlausnir

IBM DB2 gagnastjórnunarlausnir aðstoða fyrirtæki við að stýra upplýsingum með því að safna, greina, samþátta og dreifa gögnum með öruggum hætti.

Hugbúnaðurinn gerir notendum auk þess kleift að stunda gagnanám til að öðlast aukna þekkingu og innsæi, og taka betri ákvarðanir.

IBM DB2 lausnir:

  • Gagnagrunnsmiðlarar - Database Servers
  • Gagnastjórnun - Content Management
  • Samþáttun upplýsinga - Information Integration
  • Viðskiptagreind - Business Intelligence

Frekari upplýsingar:

Traustur gagnagrunnur fyrir mikilvæg gögn

Stærstu og mikilvægustu gagnasöfn heims byggja á IBM DB2 Universal Database - UDB - sem býr yfir framúrskarandi tækni og gæðum, sem í senn tryggja mikil afköst, skalanleika, áreiðanleika og hagkvæmni í rekstri.

Leiðandi í nýjungum

DB2 UDB byggir á opnum stöðlum sem auðveldar aðgang og samnýtingu upplýsinga. DB2 UDB er jafnframt leiðandi í nýjungum og má þar nefna sjálfvirkni í kerfisstjórnun, fullkominn stuðning við margmiðlun, XML, vefþjónustur og samþáttun gagna, innbyggða viðskiptagreind, auk þróunarsetur sem auðveldar smíði og innleiðingu nýs hugbúnaðar.

Viltu vita meira?