Beint í leiðarkerfi vefsins


IBM WebSphere

Samþáttun kerfa, vefgáttir og rafræn viðskipti

WebSphere hjálpar fyrirtækjum að gera kerfin sem þau reiða sig á aðgengileg á þann hátt sem hentar hverjum og einum notanda.

Með WebSphere er unnt að ná fram samþáttun í viðskiptaheildinni með skilvirkum innri, jafnt sem ytri verkferlum, og skapa þannig ný tækifæri Yfirlitsmynd af Webspherehjá viðskiptavinum, birgjum, samstarfsaðilum og starfsmönnum.

IBM WebSphere lausnir
  • Samþáttun viðskipta - Business Integration
  • Vefgáttir og aðgengi - Business Portals
  • Undirstöðuverkfæri - Foundation & Tools

 

 

IBM WebSphere Business Integration
Samþáttun kerfa og viðskiptaferla

Með samþáttun og þjónustumiðaðri högun (e.)Service Oriented Architecture (SOA)) er unnt að nýta betur fyrirliggjandi fjárfestingu og skapa sveigjanleika til að bregðast hratt og örugglega við nýjum þörfum og breyttu viðskiptaumhverfi.

Fangar öll svið samþáttunar

Lausnir IBM skapa eina heild sem fangar öll svið samþáttunar; frá hönnun vinnuferla til gagna­samskipta. Hvort sem þú vilt innleiða einstaka hluta eða heildarlausn getur þú treyst á örugga tækni og leiðandi hugbúnað frá IBM.

 

Vefgáttir og aðgengi - Business Portals
Alhliða vefgáttir fyrir viðskiptavini og starfsmenn
  • WebSphere Portal er lifandi og gagnvirk vefgátt fyrir innri og ytri vefi sem aðlagar sig að þörfum ólíkra notenda og tengir saman öll þau kerfi, upplýsingar, fólk og ferli sem hver og einn þarf á að halda
  • WebSphere Commerce verslunarlausnir henta fyrir allt frá einföldum vefverslunum til umfangsmikilla viðskiptakerfa. Hugbúnaðurinn styður samþáttun kerfa og vinnuferla innan og milli fyrirtækja
  • WebSphere Everyplace gerir notendum kleift að nálgast og vinna með upplýsingar hvar sem er og hvenær sem er með útvíkkun á rafrænum viðskiptakerfum til hvers kyns þráðlausra tækja

 

WebSphere Foundation & Tools
Viðfangamiðlun og þróunarumhverfi

WebSphere Application Server - WAS - er fremsti J2EE viðfangamiðlarinn á markaðinum. Hann inniheldur fullan stuðning við vefþjónustur (e. Web Services), býr yfir öruggri færslustjórnun og miklum skalanleika. WAS er til í ýmsum útfærslum sem henta fyrir allar stærðir fyrirtækja og verkefna.

Sveigjanlegt þróunartól

WebSphere Studio er sveigjanlegt þróunartól fyrir smíði og innleiðingu á einföldum jafnt sem umfangsmiklum hugbúnaðarlausnum þar sem miklar kröfur eru gerðar til afkasta og beitingu bestu tækni.

Byggir á opnum stöðlum

WebSphere Studio byggir á opnum stöðlum, styður Eclipse.org og hentar fullkomlega fyrir þróun sem byggir á J2EE og vefþjónustum (e. Web Services).

Viltu vita meira?