Beint í leiðarkerfi vefsins


Microsoft Dynamics CRM

 
Notaðu Microsoft Dynamics CRM til að styrkja starfsemi fyrirtækisins í sölu-, markaðs- og þjónustumálum. 

Kunnuglegt vinnuumhverfi með samþættingu við Microsoft Office 

Microsoft Dynamics CRM er samþætt við Microsoft Outlook og notendaviðmótið er líkt því sem starfsmenn þekkja úr öðrum Microsoft Office hugbúnaði. Þannig fellur Microsoft Dynamics CRM auðveldlega inn í daglegt vinnuumhverfi starfsmanna.

Náðu betri árangri með Microsoft Dynamics CRM

  • Microsoft Dynamics CRM heldur utan um viðskiptavini, tengiliði og aðra aðila á einum stað - þannig tryggir þú að starfsmenn hafi aðgang að réttum upplýsingum.
  • Með flokkun aðila og markhópagreiningu eru starfsmenn fljótari að finna rétta aðila og skráning samskiptasögu gerir þeim kleift að setja sig skjótt inn í mál viðskiptavinanna.
  • Sparaðu tíma starfsmanna með því að nýta sjálfvirka verkferla í Microsoft Dynamics CRM og náðu þannig fram hagræðingu og betri gæðum. Með skilgreindum verkferlum verður auðveldara fyrir starfsmenn að einbeita sér að því að sinna þörfum viðskiptavinanna. 
  • Mældu árangur og álag á starfsemi fyrirtækisins með samræmdri skráningu og verkferlum.

 

Sala 

Betri árangur sölustarfs með aukinni yfirsýn og markvissari eftirfylgni sölutækifæra. 

Með réttri notkun er hægt að stytta söluferlið, loka fleiri samningum og um leið bæta eftirfylgni til núverandi viðskiptavina. Með lausninni fá sölumenn fyrirtækisins skjótvirkari aðgang að öllum þeim upplýsingum sem þeir þurfa sem eykur skilvirkni þeirra til muna.

Með Microsoft Dynamics CRM getur þú á auðveldan hátt:    sales

  • Metið sölutækifæri og sett raunhæf sölumarkmið
  • Skipulagt söluaðgerðir
  • Greint markaðinn og sölutækifæri
  • Sinnt eftirfylgni sölu og viðhaldið tengslum við viðskiptavini

 

Lesa má meira um söluferli hér


Þjónusta

Skilgreindir ferlar og skráning þjónustutilvika stuðla að hraðari úrlausn mála.

Með skjótum aðgangi að öllum upplýsingum um viðskiptavininn verður þjónustan bæði einstaklingsmiðaðri og persónulegri. Aðgangur viðskiptavina að sínum tengiliðum innan fyrirtækisins eykst til muna. Þar sem hægt er að nálgast allar upplýsingar um viðskiptavininn í einu viðmóti sparast bæði tími og vinna auk þess sem betri yfirsýn fæst yfir samskipti fyrirtækisins.

Með Microsoft Dynamics CRM getur þú á auðveldan hátt:service

  • Skilgreint þjónustuferli frá A til Ö
  • Stofnað og leist þjónustutilvik sem koma í gegnum vef,  síma eða  tölvupóst 
  • Fengið altæka yfirsýn yfir þau tilvik sem verið er að vinna í með öflugri skýrslugerð CRM
  • Samnýtt þekkingu innan fyrirtækisins með upplýsingum í þekkingargrunni

 


Markaðsmál 

Markvissari herferðir með auðveldari greiningu og flokkun aðila í markhópa.

Undirbúningur fyrir aðgerðirnar verður einfaldari í sniðum og auðveldara er að nálgast viðskiptavini og hugsanlega viðskiptavini. Með skilvirkari samskiptaleiðum og -ferlum verður samhæfingin innan fyrirtækisins mun betri sem skilar sér í skjótari og árangursríkari aðgerðum auk þess sem auðveldara er að mæla árangurinn af einstökum markaðsaðgerðum.

Með Microsoft Dynamics CRM getur þú á auðveldan hátt:

  • Einfaldað skipulagningu markaðsferla
  • Skilgreint skýra markaðsstefnu
  • Skilgreint markhópa og
    Marketing
     útfært markaðsáætlanir
  • Flokkað viðskiptavini í markhópa fyrir markhópagreiningu

Viltu vita meira?



Skjáskot