

Mule er skalanlegt og leyfir þér að byrja smátt og bæta við þjónustum og kerfum eftir þörfum. Mule hefur yfirumsjón með samskiptum milli allra kerfa og þjónusta á gagnsæjan hátt og skiptir einu hvort um er að ræða þjónustur yfir Internetið eða milli sýndarvéla, auk þess er Mule algerlega óháð undirliggjandi samskiptastöðlum.
Mule byggir á hugmyndum um Enterprise Service Bus (ESB) arkitektúr. Helsti kosturinn við ESB er sá að það veitir ólíkum kerfum og þjónustum getu til að hafa samskipti sín á milli með því að virka sem þýðingar og skeytasendir á gögnum milli kerfa, á eða yfir net.
Það eru núþegar nokkrar ESB - lausnir til á markaðinum en margar af þeim eru takmarkaðar að ýmsu leyti. Þær eru annað hvort byggðar ofan á önnur kerfi eða sem skeytamiðlari sem festir þig inní ákveðnu umhverfi. Mule er hins vegar algerlega óháð tækniumhverfi og það leyfir þér að útfæra og samþátta ólík tækniumhverfi. Þú ert aldrei fastur á einum stað með Mule.
Mule Source býður einnig upp á tól til að hafa umsjón með gangsetningu verkefna (Mule HQ) og til stýringar á uppbyggingu kerfa (Mule Galaxy).
