Beint í leiðarkerfi vefsins


Opinn og frjáls hugbúnaður

Þær opnu lausnir sem við styðjum við eiga það sameiginlegt að vera auðveldar og hagkvæmar í rekstri, ásamt því að styðja við opna staðla sem gerir okkur kleift að tengja lausnirnar saman með auðveldari hætti en ella. Ekki síst teljum við að við getum sparað töluverðan leyfiskostnað fyrir viðskiptavini okkar með því að skipta yfir í opinn hugbúnað án þess að fórna þurfi gæðum og öryggi.  Þvert á móti hefur opinn hugbúnaðar í sumum tilvikum sannað sig sem öruggari en aðkeyptar lausnir.

Við búum  yfir margra ára reynslu með opinn hugbúnað  og er tilbúin að deila henni með nýjum viðskiptavinum: 
  • Við veitum ráðgjöf, þarfagreiningu og innleiðingu á opnum hugbúnaði
  • Hagkvæmisútreikningar - Við reiknum út arðsemi  og kostnað við að skipta yfir í opinn hugbúnað
  • Við bjóðum upp á sérlausnir og kennum í Java (Spring og Hibernate, kóðavistun og umhverfi)
  • Okkar sérfræðingar hafa verið að þróa lausnir með opnum forritunarsöfnum eins og Spring og Hibernate í yfir 5 ár og búa yfir mikilli reynslu á þessu sviði
  • Við innleiðingum Open Office

Við bjóðum upp á fjölbreyttar opnar lausnir sem hafa sannað sig hjá fyrirtækjum hér og út í heimi:

  • Alfresco skjalakerfi
    • Alfresco er skjalakerfi sem býður upp á svipaða virkni og Sharepoint
    • Fáðu sýnikennslu hvernig Alfresco getur bætt vinnuumhverfi þitt og skjalastjórnun í samræmi við ströngustu staðla.
  • Liferay Portal
    • Liferay er portall sem kemur með fjöldann allan af tilbúnum lausnum. Í kerfinu er mikið af öflugum samskiptalausnum en einnig er hægt að nota kerfið sem vefumsjónarkerfi til að halda utan um textaefni, myndir og fleira sem tengist því að halda úti öflugum vefsvæðum.
  • Mule ESB samþættingarhugbúnaður
    • MuleSoft er leiðandi í dreifingu á opnum samþættingarhugbúnaði með þjónustumiðaða högun (e. Service Oriented Architecture (SOA)).  Kerfið er skalanlegt,  létt og þægilegt til að þróa lausnir í takt við þarfir.  Kerfið er mjög einfalt í uppsetningu og styður fullkomlega við virðisaukandi þróun hjá fyrirtækjum. Sjá nánar hér.
  • Orbeon formasmiður
    • Orbeon byggir á XForms staðli og gerir endanotendum kleift að búa til fullkomin form
  • Jasper skýrslur og Jasper viðskiptagreind
    • Skýrslur og viðskiptagreind ofan á næstum hvað grunn sem er
  • PostgreSQL, MySQL, DB2 Express-c gagnagrunnar
    • Starfsmenn okkar hafa mikla reynslu á þróun í oft ódýrari og opnum gagnagrunnum
  • Ubuntu og Edubuntu
    • Ubuntu stýrikerfi og vefþjónar
    • Edubuntu kennsluhugbúnaður
Sjá tengdar vefsíður hér til hliðar
Næstu Skref

Fáðu ráðgjafa til að meta hvernig þitt fyrirtæki getur sparað með opnum lausnum. Við bjóðum upp á ráðgjafapakka á föstu verði þannig að í lok skoðunar hefur þú upplýsingar um kostnað við innleiðingu og sérð sparnaðinn. Þá er auðveldar að taka ákvarðanir um innleiðingu byggðar á þeim upplýsingum. 

Jafnframt bjóðum við upp á svokallaðar POC pakka þar sem við skoðum ákveðnar lausnir með viðskiptavinum í 1-2 vikur og skilum af okkur einfaldri lausn sem sýnir lausnina í hnotskurn, án nokkurra skuldbindinga.  Þetta getum við gert á mjög hagstæðum kjörum.  Hvor leiðin sem er valin þá er viðskiptavinurinn ávallt hafður í fararbroddi.

Viltu vita meira?