Beint í leiðarkerfi vefsins


ContentXXL

Öflugt – sveigjanlegt – öruggt

ContentXXL er öflugt vefumsjónarkerfi byggt á .NET tækninni og hefur hlotið verðlaun fyrir lausnir í því umhverfi frá Microsoft. Með ContentXXL eiga fyrirtæki og stofnanir auðvelt með að þróa og viðhalda öflugum ytri, innri eða viðskipta vefsvæðum á mörgum tungumálum og í takt við þarfir sínar. Í kerfinu eru margar tilbúnar einingar sem notendur geta valið úr auk þess sem sveigjanleiki kerfisins auðveldar smíði sérhæfðra eininga. Kerfið er í notkun hjá yfir 400 fyrirtækjum og stofnunum víða í Evrópu og hefur margsannað getu sína.


Helstu eiginleikar
ContentXXL hefur marga eiginleika og býður upp á fjölda aðgerðarmöguleika en meðal þeirra helstu eru:

  • Tvö viðmót umsýsluvefsvæða í gegnum vafra
  • Viðmót fyrir efnisritara innan vefsvæðisins
  • Kerfisstjóri – fyrir vef- og kerfisstjóra
  • Vefritill (WYSIWYG Editor) gerir efnisvinnslu einfalda og aðgengilega og svipar til viðmóts sem notendur þekkja í ritvinnslukerfum
  • Margar stillanlegar einingar (modules)
  • Drag & drop á einingum í síðum
  • Gagnastjóri (Resource manager) – öflug mynda- og skjalastjórn
  • Sniðmátsstjóri sem gerir uppsetningu og breytingar á sniðmátum einfaldar og fljótlegar
  • Þema efnis – breytileg birting eftir flokkun efnis, t.d. mismunandi litir í sniðmátum (Theme Concept)
  • Stuðningur við leitarvélar – notar „SmartUrl“ og „metatög“ til að ná hærra skori á leitarvélum eins og Google
  • „RSS Newsfeed“ – gerir mögulegt að útbúa fréttaveitur og deila efni til annarra vefsvæða
  • Tenging efnis (Content Relationship Management) – mögulegt að tengja saman t.d. vörur við greinar og áhugaverða tengla. Slík notkun gefur t.d. góðar leitarniðurstöður á leitarvélum
  • Verkefnastýrt vinnuferli – mögulegt er að setja „task“ á notendur í kerfinu
  • Tenging við Microsoft SharePoint
  • Hjálparhandbók á Internetinu

Einingar
ContentXXL byggir á einingum (modules) sem gegna mismunandi hlutverkum og hafa mismunandi virkni. Grunnur kerfisins er mjög öflugur og er settur saman úr mörgum tilbúnum einingum en til viðbótar geta sérhæfðar einingar aukið vægi grunnkerfisins eftir þörfum fyrirtækja. Auk þess er einfalt að þróa sérlausnir eftir þörfum hvers og eins.

Helstu einingar eru:

Grunneiningar (Standard Modules)

  • Fréttakerfi – margbrotin birting á texta, myndum o.fl.
  • Tenglakerfi
  • Notenda- og starfsmannakerfi
  • HTML-kerfi fyrir t.d. auglýsingaborða og annað óskipulagt efni
  • Flokkakerfi fyrir t.d. flokkun á vörum, atviksorðaskrá (index A-Z) o.fl.
  • Flash-kerfi
  • Leiðarkerfi (Navigation - Menues, Multilevel, Path, Sitemap o.s.frv.)
  • Form/eyðublöð í netpósti
  • Leitarkerfi – fullkomin leit í texta og skjölum, t.d. pdf
  • Innskráningarkerfi (Login Module) – t.d. fyrir innra og ytra net
  • Fréttabréf og áskriftir – uppsetning texta og HTML pósts og tölfræði yfir notkun
Séreiningar (Advanced Modules)
  • Skráakerfi – mjög öflugt skráakerfi sem leyfir notanda að hengja „metatög“ á einstakar skrár og leita í skránum sjálfum
  • Spjallrásakerfi – almennir spjallþræðir, aðgangsstýrðir að vild
  • Atburðadagatal – skráning á atburðum á dagatali, tenging við fréttaeiningu, vörueiningu. Styður leit
  • Kannana-/spurningakerfi – já/nei spurningar, „multiple-choice“ – hægt að stýra birtingu niðurstaðna myndrænt (t.d. gröf, skífurit o.s.frv.)
  • Myndvinnslukerfi – upphlöðun á einni mynd í einu eða á heilum zip skrám, fyrirfram skilgreind stilling á stærð mynda. Tenging „metataga“ við einstakar myndir
  • XML skeytamiðlun – leyfir innflutning á gögnum og birtingu á þeim á vefsvæðum, nánast óháð uppruna, innihaldi og uppbyggingu

Viltu vita meira?



Viðskiptavinir ContentXXL