VYRE Unify er vefumsjónarkerfi til að byggja og viðhalda vefsíðum og veflausnum þar sem miklar kröfur eru gerðar til sveigjanleika og skalanleika. Kerfið er mjög öflugt til að halda utan um mikið af gögnum, líftíma gagna, útgáfustjórn og flókin tengsl milli ólíkra efnisflokka.
VYRE byggist á Java J2EE og styður viðurkennda staðla á borð við. JSR-168, XML, XHTML og CSS. Stuðningur kerfisins við þessa staðla tryggir gæði og styttir þróunar- og viðhaldstíma viðbótareininga. VYRE nýtir vefþjónustur til samskipta milli birtingarlags og efnislags og er með fullan stuðning við „portlettur“ (JSR-168). Þessir eiginleikar bjóða því upp á flytjanleika á stöðluðum portlettum inn í kerfið t.d. frá öðrum portal kerfum á borð við IMB Websphere, SAP portal, Liferay og fleiri.
Nokkrir kostir VYRE eru:
1) Uppbygging „módúla“ – mjög skalanlegt umhverfi.
- Gagnakerfi (Content Module).
- Notendakerfi (User Module).
- Birtingarkerfi (Deployment Module) – hægt er að hafa eitt eða fleiri hér háð álagi.
- Skjalameðhöndlunarkerfi (DAPS Server Module).
- Verslunarkerfi (Commerce Module).
- PDF-sniðmátakerfi (PDF Templating Module).
- Kannanir og tölfræðilegar niðurstöður (Surveys and Statistic Module).
- Skilaboðakerfi (email, local, sms, instant messages, desktop publishing).
- Messaging Module.
2) Kerfið er óháð gagnagrunnum og keyrsluumhverfi.
- Sparnaður þar sem ekki þarf að kaupa kostnaðarsöm leyfi.
3) „Taxonomy“-flokkun á öllu efni.
- Styður viðurkennda „metadata“–staðla, t.d. Dublin Core, IPTC, e-gif og fleiri.
4) Fullkomin textaleit.
- Leitar bæði í gögnum og í skrám, t.d. Word, Excel, PowerPoint, PDF o.s.frv.
- Hægt að vista leitarniðurstöður og birta á vefnum.
- Öflugt tæki til að mata notendur á upplýsingum og stjórna hvaða upplýsingum notendur hafa aðgang að.
5) Býður upp á marga möguleika varðandi efnisumsjón.
- Bakendi, viðhaldssvæði og „hot point editing“.
- Kerfisstjórn í gegnum bakenda þar sem hægt er að vinna beint í kóða sniðmáta og gagna.
6) Samnýting efnis milli margra vefsíðna.
- Miðlægar gagnageymslur fyrir „strúktúrerað“ efni annars vegar og fyrir skrár (myndir, audio/video, PDF, MS Office o.s.frv.) hins vegar.
- Hægt er að skilgreina skyldleika efnis (t.d. frétta) milli skráa (t.d. mynda) og milli efnis og skráa.
7) Innbyggt DAM-kerfi (Digital Asset Management) sem annast sniðbreytingar á skjölum.
- Getur búið til yfirlitsmyndir (thumbnails + story boards), PDF-skjöl og vistað texta úr skjölum á XML-formati.
- Getur þjappað hljóð- og myndbandsskrár í öll helstu snið (MP3, Windows Media, Real, Quicktime).
- Getur útbúið PDF-skjöl á stundinni og haft tilbúin til prentunar (t.d. bæklingar, nafnspjöld, plaköt).
- Getur búið til vatnsmerki á skjöl og myndir og þannig stuðlað að því að höfundarréttarreglur séu uppfylltar.
- Getur sótt „metadata“-upplýsingar sem eru innbyggðar í skrár og vistað sjálfkrafa í gagnageymslur kerfisins.
8) Innbyggðar RSS-veitur fyrir allar gerðir af óflokkuðu/flokkuðu efni.
- Bæði fyrir texta- og hljóðskrár (t.d. fyrir fréttir + podcast-áskriftir).
9) Öflugt verslunarkerfi fyrir sölu á:
- Vörum
- Áskrift
- Stafrænum skjölum/hugbúnaði.
- Tilbúið til notkunar með PayPal og WorldPay.
- Auk þess er mögulegt að tengjast kreditkortakerfum, innlendum sem erlendum.
10) Útgáfueftirlit – geymir allar útgáfur af:
- efni
- síðum
- sniðmátum
- CSS-skjölum
- Auðvelt að fara í fyrri útgáfu efnis/síðu o.s.frv.
- Leyfir samanburð á útgáfum af sama efni.
11) Hægt er að framkvæma flóknar kannanir með eyðublöðum og birta tölfræðilegar niðurstöður á vefsíðu með:
- súluritum
- kökuritum
- skífuritum
- línuritum o.fl.
12) Innbyggt þýðingarferli fyrir vefi á mörgum tungumálum. Staðbundnar þýðingar fyrir föst skilaboð/texta, t.d. á hnöppum og merkimiðum í formum o.s.frv.
13) Tilvalið kerfi fyrir markaðsherferðir. Getur haldið utan um allt efni, prentað, vefrænt, hljóð og mynd. Getur stýrt birtingu efnis háð notanda – persónutengd markaðsstýring efnis.
14) Hægt er að útbúa vinnuferli sérsniðið að þörfum og samkvæmt reglum viðkomandi fyrirtækis.
15) Fréttabréf, markpóstur, „desktop publishing“ og aðrar öflugar lausnir til að ná til viðskiptavina.