Beint í leiðarkerfi vefsins


WebTrends 8

WebTrends 8 – Hvað er að gerast á vefsvæðinu þínu?
Hvort er meira virði fyrir þig og þitt vefsvæði, 1.000 gestir sem stoppa stutt eða 100 gestir sem koma aftur og aftur og nýta vefinn sem hlut af sínu lausnar- og þjónustumengi? Með WebTrends 8 getur þú loksins fengið meiri upplýsingar um vefsvæðið þitt en bara fjölda heimsókna. WebTrends veitir þér heildaryfirsýn yfir vefinn þinn og hjálpar þér bæði að ná til nýrra viðskiptavina og halda sambandi við núverandi viðskiptavini.

Leiðandi á heimsvísu
NET IQ, framleiðandi WebTrends, er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í vefmælingum og vefgreiningu og er þrefalt stærra en helsti keppinauturinn. WebTrends er margverðlaunað tól og nýtir þekkta staðla og mæliaðferðir í vefgreiningum sem hjálpa markaðs- og upplýsingatæknifólki að ná sem mestu út úr vefsvæðum og tryggja hámarksarðsemi vefja (ROI).


WebTrends er heildarlausn í vefgreiningu með einstaklega fjölbreytta virkni, hvort sem um er að ræða greiningu markaðsherferða, hámarksárangur í nýtingu leitarvéla eða ferligreiningar og aðgerðagreiningar notenda, svo eitthvað sé nefnt.


Þúsundir fyrirtækja og stofnana út um allan heim nýta Webtrends sem hluta af sínu lausnamengi. Rúmlega helmingur Fortune 500-fyrirtækjanna reiðir sig á Webtrends við vefgreiningar.

Viltu vita meira?