
TM Software hefur þróað samvinnulausn í SharePoint fyrir stofnanir sem vinna í þágu almannavarna. Launsin nefnist OneResponse og var hún unnin í samvinnu við Microsoft Corpration. Henni er ætlað að aðstoða stjórnvöld og alþjóðastofnanir víða um heim við að samhæfa viðbrögð við náttúruhamförum og farsóttum með aðstoð upplýsingatækni.
OneResponse er alþjóðleg samvinnulausn sem gerir ótengdum aðilum kleyft að starfa saman og deila upplýsingum sín á milli og til almennings í samræmdum viðbrögðum við hamförum. Microsoft valdi TM Software sem samstarfsaðila til að hanna og smíða lausn byggða á MS Office SharePoint
Um er að ræða einstaka lausn til að samhæfa aðgerðastjórn við skipulagningu neyðaraðgerða vegna náttúruhamfara og samræma hjálpar- og neyðaraðstoð. Þannig er hægt að koma fólki fyrr til aðstoðar, auka skilvirkni í hjálparstarfi og tryggja öruggari upplýsingamiðlun.
Lausnin hefur núþegar verið notuð hjá Sameinuðu þjóðunum við hjálparstarf og aðgerðarstjórnun í Myanmar, Mexíkó og Haíti. Hún hentar öllum fyrirtækjum og stofnunum sem vinna í þágu aðgerðastjórnunnar og tryggir að betra samræmi verður á neyðaraðstoð þar sem allir starfsmenn og sjálfboðaliðar geta nálgast allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru á einum stað.
Sumarið 2008, þegar fellibylurinn Nargis gekk yfir Myanmar (Burma) sá TM Software, í samstarfi við Microsoft og aðra samstarfsaðila þeirra um að setja upp samvinnulausn í SharePoint fyrir hjálparstarfið. Þessi lausn þótti takast með öllum ágætum en þó má alltaf gera betur.
Þróunarsamstarf Microsoft við TM Software um lausn sem leysa mætti slík verkefni hraðar og enn betur bar svo ávöxt snemma árs 2009 þegar OneResponse lausnin sá dagsins ljós.
Notast var við SCRUM aðferðafræðina við verkefnastjórn og unnið var í nánu samstarfi við verkefnastjóra og eigendur verkefnisins hjá Microsoft og OCHA varðandi þarfir, hönnun og framgang verkefnisins á hverjum tíma. Öll forritun, viðmót og tæknileg hönnun og prófanir voru í höndum sérfæðinga TM Software.
OneResponse er lausn sem byggð er á Microsoft Office SharePoint Server 2007 (MOSS) og samanstendur af sérstökum sniðskjölum (site definition) ásamt fjölda sérsniðinna aðlagana.
Saman mynda þær eina heild með ytri vef, samvinnusvæðum fyrir hjálparstarf, svæðum fyrir ákveðin verksvið, svokallaða "clusters" (t.d. heilbrigðismál, öryggismál eða matvælaaðstoð), korta svæði, frétta miðstöð, upplýsingaarkitektúr, öryggisarkitektúr ásamt fjölda sértækra aðlaganna sem ætlað er að einfalda og flýta fyrir notkun kerfisins.
Gengið er þannig frá lausninni að ljúka má uppsetningu og aðlögunum á fáeinum klukkutímum. En sé lausnin upp sett má útbúa svæði og byrja að taka á móti notendum á fáeinum mínútum.
Á haustdögum 2009 fékk svo að reyna á stóran hluta lausnarinnar þegar TM Software, í samstarfi við Microsoft setti upp lausn byggða á þessari tækni fyrir heilbrigðisráðuneyti Mexíkó sem hluta af samstilltu viðbragði þeirra við inflúensu A (H1N1). Sú innleiðing gekk vonum framar og tók afhending sér aðlagaðrar lausnar einungis fáa daga en meðal breytinga var þýðing kerfisins yfir á Spænsku.
Þá hefur lausnin verið notuð varðandi samskipti og miðlun gagna/upplýsinga hjá þeim aðilum sem hafa komið á björgunaraðgerðum og uppbyggingu á Haíti eftir að mjög öflugur jarðskjálfti gekk yfir. Unnið er að innleiðingu lausnarinnar í heild á vettvangi Sameinuðu þjóðanna en lausnin er hluti af viðbragðs áætlun þeirra fyrir hamfarir og mannúðarstarf.