Eftirfarandi eru nokkur dæmi um hvernig Microsoft Office SharePoint Server 2007 (MOSS) getur gagnast fyrirtækinu þínu.
- Veitir aðgang að einu samhæfðu umhverfi til að viðhalda innraneti fyrir starfsmenn, skjölum, vefsíðum og veflægum kerfum, þvert á fyrirtækið
- Sýnir starfsfólki einfalt, kunnuglegt og samfellt notendaviðmót
- Eykur afköst starfsmanna með því að einfalda daglega upplýsingavinnslu
- Styður við uppfyllingu laga og reglna með víðtækri stjórn á upplýsingum
- Gerir stjórnun árangursríkari og endurnýtir upplýsingar sem eykur virði þeirra
- Einfaldar aðgengi, þvert á fyrirtæki, að skipulögðum og óskipulögðum upplýsingum, sem geta legið í mörgum og mismunandi kerfum
- Tengir saman fólk sem býr yfir upplýsingum og þekkingu
- Flýtir fyrir viðskiptaferlum og heldur utan um öll rafræn innsláttarform
- Deilir viðskiptaupplýsingum og tryggir á sama tíma áreiðanleika og öryggi gagna
- Auðveldar betri og upplýstari ákvarðanatöku með framboði á mikilvægum viðskiptalegum upplýsingu á einum aðgengilegum stað
