
WebSphere hjálpar fyrirtækjum að gera kerfin sem þau reiða sig á aðgengileg á þann hátt sem hentar hverjum og einum notanda.
Með WebSphere er unnt að ná fram samþáttun í viðskiptaheildinni með skilvirkum innri, jafnt sem ytri verkferlum, og skapa þannig ný tækifæri
hjá viðskiptavinum, birgjum, samstarfsaðilum og starfsmönnum.
Með samþáttun og þjónustumiðaðri högun (e.)Service Oriented Architecture (SOA)) er unnt að nýta betur fyrirliggjandi fjárfestingu og skapa sveigjanleika til að bregðast hratt og örugglega við nýjum þörfum og breyttu viðskiptaumhverfi.

Lausnir IBM skapa eina heild sem fangar öll svið samþáttunar; frá hönnun vinnuferla til gagnasamskipta. Hvort sem þú vilt innleiða einstaka hluta eða heildarlausn getur þú treyst á örugga tækni og leiðandi hugbúnað frá IBM.
WebSphere Application Server - WAS - er fremsti J2EE viðfangamiðlarinn á markaðinum. Hann inniheldur fullan stuðning við vefþjónustur (e. Web Services), býr yfir öruggri færslustjórnun og miklum skalanleika. WAS er til í ýmsum útfærslum sem henta fyrir allar stærðir fyrirtækja og verkefna.
WebSphere Studio er sveigjanlegt þróunartól fyrir smíði og innleiðingu á einföldum jafnt sem umfangsmiklum hugbúnaðarlausnum þar sem miklar kröfur eru gerðar til afkasta og beitingu bestu tækni.
WebSphere Studio byggir á opnum stöðlum, styður Eclipse.org og hentar fullkomlega fyrir þróun sem byggir á J2EE og vefþjónustum (e. Web Services).