
Oft er helsta hindrunin á hagkvæmri nýtingu SharePoint sem hópvinnu- og skjala-stjórnunarkerfis að notendum þykir leiðin milli vinnuumhverfis þeirra í Office hugbúnaðarpakkanum og SharePoint skjalasafnsins torfær og löng. Með Office2Share opnar TM Software greiða leið á milli Office hugbúnaðarpakkans og SharePoint þjóns fyrirtækisins.
Með viðbótinni er settur inn hnappur í viðmót Office sem er bein tenging milli í Office hugbúnaðarins og SharePoint þjóna. Þannig getur notandinn með einum smell opnað skjöl beint af SharePoint þjóninum eða vistað skjalið beint niður í viðeigandi skjalasafn.
Office2SharePoint viðbótin er til fyrir
Allar frekari upplýsingar um Office2Share viðbótina eða um SharePoint hópvinnu og skjalakerfið frá Microsoft má fá hjá SharePoint ráðgjöfum TM Software í síma 545-3000 eða í tölvupósti á netfangið sharepoint@tmsoftware.is
Office2Share getur tengst hvaða SharePoint svæði sem notandinn hefur aðgang að. Þegar nýjum SharePoint vef er bætt við sér notandinn öll skjalasöfn og undirsvæði se hann hefur aðgang að. Mögulegt er að tengjast mörgum SharePoint þjónum samtímis.
Með Office2Share er hægt að opna skjöl beint af SharePoint þjóni með einni aðgerð. Þá fær notandinn einfald viðmót á þau SharePoint svæði sem hann hefur sett inn, og getur auðveldlega fundið þau skjöl sem hann leitar að.
Með sama hætti er hægt að vista skjöl niður á SharePoint þjóna með einum smelli hafi notandinn til þess réttindi.
Office2Share býður upp á að setja myndir eða hlekki beint af SharePoint þjóni inn í skjöl sem verið er að vinna með. Þetta einfaldar til að mynda til muna vinnu við PowerPoint sýningar, þar sem hægt er að sækja myndir og efni beint af miðlægu PowerPoint skjalasafni eða SharePoint myndasafni.
Í viðmóti Office2Share er notendum boðið upp á að búa til ný skjalasöfn, nýjar möppur í skjalasöfnum eða jafnvel undirsvæði á SharePoint þjóninum, hafi þeir til þess nægjanleg réttindi. Þetta geririnotendum mun auðveldara að skipuleggja uppbyggingu gagna sinna á SharePoint þjóninum, án þess að þurfa að yfirgefa vinnu sína innan Office 2007 hugbúnaðarins.
Hafðu samband við okkur í síma 545-3000 eða í tölvupósti: sharepoint@tmsoftware.is til að fá frekari upplýsingar um möguleika Office2Share fyrir fyrirtæki þitt.
Verðskrá fyrir Office2SharePoint
Hafðu samband við okkur hjá TM Software í síma 545-3000 eða í netfangið sharepoint@tmsoftware.is til að fá tilboð í leyfi fyrir fleiri en 300 notendur og sérstök leyfi fyrir menntastofnanir og góðgerðasamtök.
Vörublöð
Skrár eru opnaðar af SharePoint þjóni í gegnu ...
Office2SharePoint gerir notendum kleift að op ...
Hnöppum er bætt við viðmót Office 2007 til að ...