
Kerfið heldur utan um námskeiðahald og með honum er auðvelt að fylgjast með skráningu og eftirspurn eftir námskeiðum. Námskeiðin eru birt á forsíðunni með dagsetningu og staðsetningu. Hægt er að leita og flokka námskeið eftir öllum dálkum.
í kerfinu er innbyggt áminningakerfi. Áminningin er í formi smáskilaboða SMS og/eða tölvupósts og á sér stað þegar nemandi hefur skráð sig á námskeið og búið að ljúka staðfestingarskrefi. Áminningin er valfrjáls og getur nemandi sjálfur valið hvort hann vilji áminningu og í hvaða formi hún er.
Þrjú stig notenda eru í kerfinu; nemandi, leiðbeinandi og stjórnandi. Allir notendur fá einkvæmt notendanafn og lykilorð að kerfinu.
Nemandi getur skráð sig á námskeið, séð yfirlit yfir þau námskeið sem hann er skráður í, hvaða námskeið hann hefur lokið og hvaða gráðum hann hefur náð og hversu mikið vantar upp á að hann ljúki gráðu (hvar hann er staddur í ferlinu).
Leiðbeinandinn hefur sýn á þau námskeið sem hann leiðbeinir, getur gefið einkunn og lokað námskeiði.
Stjórnandinn hefur umsjón með notendum, gefur þeim réttindi, getur skráð þá á brautir og námskeið. Hann býr til námskeið, setur á það forkröfur og velur það á ákveðið svið. Hann hefur einnig aðgang að ýmsum stillingum varðandi kerfið sem gerir það sem sveigjanlegast fyrir aðra notendur.
Prófdómarinn er sjálfvirkur réttindareiknir sem reiknar út hvaða gráðu nemandi hefur náð og er stilltur eftir ykkar þörfum á stillingasíðu kerfisins. Á réttindasíðunni getur notandi séð hvernig honum gengur að safna upp réttindum/gráðum og hvaða áföngum/námskeiðum hann hefur lokið.
Eiginleikar kerfisins eru margir en þeir helstu eru:
Í því er einfalt að halda utan um námskeið og allar þær upplýsingar sem því fylgir. Hann heldur utan um greiðslur og fjölda nemenda. Viðmótið er einstaklega einfalt og hjálpar nemendum að fylgjast með sinni stöðu og sparar óþarfa umsýslu í skráningarblöðum og einkunnagjöf. Kerfið er hægt að sníða að þörfum hvers og eins. Kerfið hentar því bæði fyrir stærri og minni fyrirtæki og stofnanir.
Ef þið hafið einhverjar spurningar eða þið hafið áhuga á að kynna ykkur kerfið sendið þá endilega tölvupóst á info@tmsoftware.is