Hjá TM Software starfa vel menntaðir og vottaðir verkefnastjórar sem hafa áratuga reynslu af úrvinnslu bæði einfaldra og umfangsmikilla hugbúnaðarverkefna.
Verkefnastjórar TM Software geta komið að verkefnumi á öllum vinnslustigum verkefna.
Verkefnastjórar TM Software geta tekið að sér að stýra verkefnum fyrir hönd viðskiptavina sem unnin eru af þriðjaaðila, þar sem aðrir starfsmenn TM Software koma ekki að úrvinnslu.
Þannig geta utan að komandi verkefnastjórar minnkað álag af ákveðnum starfsmönnum sem hafa e.t.v. takmarkaða þekkingu á verkefnum og látið sérfræðinga leiða verkefnið áfram og um leið tryggt framgang þess.
Einnig hafa agile þróunaraðferðir okkar og Scrum verkefnastjórnun vakið athygli hjá viðskipvinum okkar og víða. Aðferðarfræði okkar hefur aukið framleiðni teyma, aukið virði í verkefnum og lágmarkað sóun sem oft fylgir þegar hefðbundinni aðferðarfræði í þróun er fylgt. Því er tilvalið að fá verkefnastjóra frá okkur til aðstoða við að innleiða nýja starfshætti og hugmyndafræði við hugbúnaðarþróun.
